Sumarauki

P9120062 P9120004Hér er ég á Höfða við Mývatn á laugardaginn og frúin komin upp á Leirhnjúk. Við lékum okkur í góða veðrinu og þræddum m.a. allar gönguleiðirnar í Dimmuborgum áður en við fórum á Leirhnjúk. Gott var að komast í jarðböðin á eftir. 

Við gistum á Húsavík og skoðuðum fossa og fjörur á Tjörnesi á sunnudaginn, skutumst upp á Húsavíkurfjall og niður að Botnsvatni áður en við lögðumst í ber í Aðaldal og fórum loks að Barnafossi áður en við brunuðum heim. Sannarlega frábær sumarauki þessi helgi.

P9130094

                                                    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

greinilega afkastamikil hjú, öfunda ykkur en náði samt líka að njóta sumaraukans þó ekki í jarðbaði;)Flottar myndir

Brynja (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband