13.9.2009 | 20:43
Sumarauki
Hér er ég á Höfða við Mývatn á laugardaginn og frúin komin upp á Leirhnjúk. Við lékum okkur í góða veðrinu og þræddum m.a. allar gönguleiðirnar í Dimmuborgum áður en við fórum á Leirhnjúk. Gott var að komast í jarðböðin á eftir.
Við gistum á Húsavík og skoðuðum fossa og fjörur á Tjörnesi á sunnudaginn, skutumst upp á Húsavíkurfjall og niður að Botnsvatni áður en við lögðumst í ber í Aðaldal og fórum loks að Barnafossi áður en við brunuðum heim. Sannarlega frábær sumarauki þessi helgi.
Athugasemdir
greinilega afkastamikil hjú, öfunda ykkur en náði samt líka að njóta sumaraukans þó ekki í jarðbaði;)Flottar myndir
Brynja (IP-tala skráð) 13.9.2009 kl. 22:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.